Staða ferðamála, ferðaleiðir, áfangastaðir
Einn liður forverkefnisins er að fá yfirsýn yfir stöðu ferðamála á svæðinu, s.s. hvar helstu ferðaleiðir liggja, hvert ástand þeirra er, hverjir helstu áfangastaðir eru, hvernig þeir dreifast og hvað þar er í boði í afþreyingu, gistingu og veitingum. Einnig hvernig ferðaþjónusta spilar saman við svæði með verndargildi vegna náttúru, landslags eða minja. Til að ná þessari heildarsýn á svæðið eru birt hér á vefnum kort sem verða nýtt á fundi með samráðshópi í byrjun apríl og við frekari mótun verkefnisins. Á fundinum í apríl verður t.d. fjallað um áskoranir og tækifæri tengd umhverfi, samfélagi og ferðaþjónustu á svæðinu út frá sérkennum þessu og út frá helstu ferðaleiðum og stöðum.
Kortavefsjár
Vefsjár sem nýttar hafa verið við gerð kortanna að ofan eru m.a.:
Gagnabanki Ferðamálastofu yfir mögulega viðkomustaði ferðafólks og helstu innviði svæða. Gögnunum err ætlað að styðja við skipulagningu, stefnumótun og vöruþróun í ferðamálum.
Kynningu um gagnabankann á Ferðamálaþingi 2015 má nálgast hér.
Sagnagrunnurinn er kortlagður gagnagrunnur yfir sagnir úr helstu þjóðsagnasöfnum Íslands.
Kort Borgarbókasafns Reykjavíkur yfir sögusvið eða áhrifastaði skáldsagna af ýmsu tagi; „venjulegra“ skáldsagna, barnabóka og sögulegra skáldsagna. Bækurnar eru langflestar íslenskar en þó eru nokkur erlend verk inn á milli.
Grunnkort.
Vefsjá Vegagerðarinnar.